Vill bara minna fólk á knattspyrnufélagið (sparkfjelagið) Heklu í Árósum. Gríðarlega öflugt félag , þar sem alltaf er nóg um að vera. Fótboltinn að sjálfsögðu stærsti parturinn en liðið leikur í dönsku deildarkeppninni, nánar tiltekið í seríu 4. Auk þess tekur liðið þátt í bikarkeppnum, æfingamótum og öðru sem mögulegt er að taka þátt í.
Ef menn eru áhugasamir um fótbolta, eru í vafa hvert þeir eigi að flytja innan Danmerkur og Århus er inní myndinni, þá hvetjum við menn eindregið að taka SF Heklu með í þann reikning.
Sjá nánar heimasíðu félagsins
http://www.sfhekla.dk